Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir í átjánda sinn til ljóðasamkeppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Þá fer einnig fram Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs.
Ljóðum skal skilað í fjórum eintökum undir dulnefni ekki síðar en 7. desember. Með hverju ljóði þarf að fylgja lokað umslag merkt dulnefninu sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð en öllum öðrum gögnum eytt. Athugið að ljóðin mega ekki hafa birst áður. Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viðurkenningum sunnudaginn 20. janúar 2019 í Salnum. Verðlaunaafhendingin er liður í Dögum ljóðsins í Kópavogi en þá er einnig gert grein fyrir úrslitum úr ljóðasamkeppni grunnskólanemenda. Nánari upplýsingar: menningarhusin@kopavogur.is eða 441 7607
Skilafrestur er til og með 7. desember en utanáskriftin er: Ljóðstafur Jóns úr Vör - Menningarhúsin í Kópavogi - Digranesvegi 1 - 200 Kópavogur.
Hér má nálgast auglýsingu með öllum upplýsingum.
Eftirtalin skáld hafa hlotið Ljóðstafinn:
2018
Sindri Freysson: Kínversk stúlka les uppi á jökli
2017
Ásta Fanney Sigurðardóttir: Silkileið nr. 17
2016
Dagur Hjartarson: Haustlægð
2015
Ljóðstafur ekki veittur
2014
Anton Helgi Jónsson: Horfurnar um miðja vikuna
2013
Magnús Sigurðsson: Tungsljós
2012
Hallfríður J. Ragnheiðardóttir: Triptych
2011
Steinunn Helgadóttir: Kaf
2010
Gerður Kristný: Strandir
2009
Anton Helgi Jónsson: Einsöngur án undirleiks
2008
Jónína Leósdóttir: Miðbæjarmynd
2007
Guðrún Hannesdóttir: Offors
2006
Óskar Árni Óskarsson: Í bláu myrkri
2005
Linda Vilhjálmsdóttir: Niður
2004
Hjörtur Marteinsson: Hvorki hér né ...
2003
Ljóðstafur ekki veittur
2002
Hjörtur Pálsson: Nótt frá Svignaskarði
Upplýsingar um handhafa Ljóðstafs Jóns úr Vör og verðlaunahafa og úrslit úr grunnskólakeppninni má nálgast á Kopavogur.is